Fullkomið lyfjaafgreiðslukerfi LS Retail
LS Retail býður til morgunverðarfundar miðvikudaginn 24. apríl 2024. Á fundinum kynnir LS Retail lyfjaafgreiðslukerfið LS Central for pharmacies og þau tækifæri sem það býður uppá fyrir lítil og stór apótek.
Kerfið er útbreiddasta lyfjaafgreiðslukerfi Norðurlanda og í notkun hjá viðskiptavinum á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð.
Helstu eiginleikar lausnarinnar er:
- Fullkomið lyfjaafgreiðslukerfi, verslunarkerfi og fjárhagsbókhald í einni og sömu lausninni
- Microsoft Business Central fjárhagsbókhald
- LS Central verslunar og kassakerfi
- LS Central for pharmacies lyfjaafgreiðslukerfi
- Stöðluð tenging við vefverslun
- Staðlað kerfi sem auðvelt er að aðlaga að þörfum hvers og eins
- Skýjalausn með lægri rekstrarkostnaði og auknu rekstraröryggi
- Fast mánaðargjald
- Hægt að fækka og fjölga notendum eftir þörfum
- Fjöldi samstarfsaðila LS Retail þjónusta kerfið á Íslandi
Kynningarfundurinn verður haldinn á skrifstofu LS Retail, Norðurturni Smáralindar, Hagasmára 3, Kópavogi (14. hæð) 24. apríl 2024 milli 8:30 og 10:00.